XXL safarí er sérstakur 4 klukkustunda fjórhjólaleiðangur í sveitinni þar sem þú nærð virkilega að njóta umhverfisins.
XXL safarí er lengsta fjórhjólaferðin okkar og hugsuð fyrir þá sem vilja fara aðeins hægar yfir og njóta umhverfisins betur, enda býður leiðin upp á mikla náttúrufegurð.
Þessi ferð er ekki ósvipuð Quad Mad ferðinni, en í XXL safaríferðinni er meira svigrúm til að upplifa það sem ber fyrir augu í stað þess að áherslan sé lögð á hraðann.
Reynsla af fjórhjólaferðum er ekki nauðsynleg, fjórhjólin eru mjög þægileg og einföld í notkun. Leiðirnar sem við förum eru heldur ekki sérstaklega erfiðar og vegna þess að við förum hægar yfir þá reynir þessi ferð minna á líkamlegt þol gesta en Quad Mad ferðin.
Vertu landkönnuður í einn dag og komdu með í þennan frábæra fjórhjólaleiðangur!
Við förum frá Lambhaga og byrjum á því að fara upp Hafrafellið. Þaðan förum við í gegnum Mosfellsbæinn og upp á Esjumela og síðan upp með Leirvogsánni inn dalinn. Við ökum yfir nokkrar gamlar og lítið farnar brýr, förum yfir nokkrar ár og ökum í fallegu umhverfi á lítið förnum malarvegum. Ef við höfum tímann með okkur í liði reynum við að fara alla leið upp að rótum Móskarðshnjúka.
Síðan ökum við inn Mosfellsdalinn og stoppum í Álafosskaffi til að fá okkur hressingu.
Við endum svo ferðina á að fara upp á Úlfarsfellið til að sjá stórkostlega útsýnið sem er þar frá toppnum yfir Reykjavíkursvæðið, Reykjanesið og fjöllin í kring. Slóðarnir upp á Úlfarsfellið eru mjög skemmtilegir og margt að sjá á leiðinni.
XXL safarí er ferð fyrir þá sem vilja ekki bara fara í góða fjórhjólaferð heldur líka upplifa sem mest á leiðinni. Eins og sjá má hér að ofan er farið um víðan völl og mikið gert, séð og kannað.
Það er auðvelt að aðlaga þessa ferð að hverjum hóp fyrir sig, hafðu samband og segðu okkur frá þínum hóp!